fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Fjárfestahátíð á Siglufirði 2023

Norðanátt, með stuðningi frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, stendur fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði dagana 29. – 31. mars 2023.

Fjárfestahátíð Norðanáttar er vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt og vilja kynna sínar hugmyndir fyrir fjárfestum og þar með auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðunum. Á fjárfestahátíðinni, sem haldin er í marsmánuði ár hvert, kynna frumkvöðlar verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.

Verkefnunum verður skipt í tvo flokka:

  • Sprotafyrirtæki: Verkefni á fyrsta stigi fjármögnunar sem leita eftir fjármögnun á bilinu 20 m.kr. til 100 m.kr.

  • Vaxtarfyrirtæki: Verkefni sem hafa fengið fjármögnun, eða vaxið af eigin tekjum, en þurfa aukið fjármagn til að stækka enn frekar og leita eftir fjármögnun upp á 100 m.kr. eða meira.

Sótt er um hér á vefsvæði Norðanáttar og er öllum frjálst að senda inn umsókn sem telja verkefni sín falla undir áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2022.

Verkefnin sem valin verða af valnefnd fá að kynna verkefni sín á Fjárfestahátíðinni á Siglufirði fyrir fullum sal af fjárfestum, ásamt því að fá að taka þátt í sjálfri hátíðinni. Verkefnin sem komast áfram munu fá þjálfun og leiðsögn hjá sérfræðingum RATA sem tryggja góðan undirbúning fyrir stóra daginn á Siglufirði. Þjálfun og þátttaka á hátíðinni er frumkvöðlum að kostnaðarlausu.

Nánar