fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Síðustu forvöð að sækja um styrki Myndstefs

Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna fyrir verkefni sem unnin eru á árinu 2016. Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa einstaklingar sem starfa sem myndhöfundar.Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.myndstef.is og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 16. ágúst 2016. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki afgreiðslu. Tekið skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum.Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma.Vakin er athygli á að þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki fyrir birtingu þessarar auglýsingar verða að endurnýja þær umsóknir. Myndstef áskilur sér rétt til að birta á heimasíðu sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í samráði við höfund þess.Allar nánari upplýsingar gefur Ólöf Pálsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar, 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið myndstef@myndstef.is