fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

507. fundur SSS 29. nóvember 2002

Árið 2002, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn 29. nóvember kl. 12.00 á Fitjum.

Mætt eru:  Böðvar Jónsson, Hörður Guðbrandsson, Óskar Gunnarsson, Sigurður Jónsson, Jón Gunnarsson, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.

Dagskrá:

Formaður lagði til að 11. liður dagskrárinnar yrði afgreiddur fyrst.

11. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suðurnesjum fyrir árið 2003  lagðar fram á fundinum.  Ólafur Örn Ólafsson formaður  fjárhagsnefndar SSS  fylgdi fjárhagsáætlunum úr hlaði. Ingimundur Guðnason sat fundinn undir þessum lið.

1. Bréf dags. 12/4 ´02 frá Samb. ísl. sveitarfélaga ásamt umsögn um skýrslu nefndar sem hefur endurskoðað laga-og reglugerðarákvæði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Lagt fram.

2. Bréf dags. 12/11 ´02 frá Samb. ísl. sveitarfélaga varðandi hækkun á framlögum ríkisins  til atvinnuþróunarfélaga. Lagt fram.

3. Bréf dags. 12/11 ´02 frá sjávarútvegsnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, 244. mál,  flutningur aflaheimilda milli ára. Stjórnin tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.

4. Bréf dags. 12/11 ´02 frá sjávarútvegsnefnd Alþingis ásamt frumvörpum til laga um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, 245. mál, uppsjávarfiskur, og veiðieftirlitsgjald, 246. mál, hækkun gjalds. Stjórnin tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.

5. Bréf dags. 14/11 ´02 frá iðnaðarnefnd Alþingis ásamt tillögu til þingsályktunar um ójafnvægi í byggðamálum, 29. mál. Stjórnin tekur ekki afstöðu til þingsályktunarinnar.

6. Bréf dags. 20/11 ´02 frá samgöngunefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um póstþjónustu, 257. mál, EES-reglur. Stjórnin tekur ekki afstöðu til frumvarpsins.

7. Bréf dags. 22/11 frá landbúnaðarnefnd Alþingis ásamt tillögu til þingsályktunar um aðstöðu til hestamennsku, 334. mál. Stjórnin tekur ekki afstöðu til þingsályktunarinnar.

8. Bréf dags. 27/11 frá umhverfisnefnd Alþingis ásamt frumvarpi til laga um meðhöndlun úrgangs, 338. mál, EES-reglur. Málinu frestað.

9. Fundur framkvæmdastjóra með fulltrúum Byggðastofnunar um atvinnu- og byggðaþróun á Suðurnesjum. Formanni og framkvæmdastjóra falið að leggja fram drög að samningi við Byggðastofnun.

10. Erindi dags. 23/10 ´02 frá stýrihóps áfallateymis á Suðurnesjum.  Frestað á síðasta fundi.  Framkvæmdastjóri lagði fram upplýsingar á fundinum.  Í ljósi þeirra upplýsinga, liggur fyrir að áfallahjálp er á ábyrgð Landlæknis-embættisins. Í þeirri von að slíkur hópur verði áfram starfræktur á Suðurnesjum mun stjórn SSS framsenda erindið til Landlæknisembættisins og stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

11. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnana sveitarfélaganna á Suðurnesjum fyrir árið 2003  lagðar fram á fundinum.  Ólafur Örn Ólafsson formaður  fjárhagsnefndar SSS  fylgdi fjárhagsáætlunum úr hlaði. Ingimundur Guðnason sat fundinn undir þessum lið.

12. Sameiginleg mál.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.13.20