fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

532. fundur SSS 14. júní 2004

Árið 2004, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mánudaginn 14. júní, kl. 13.00 á Fitjum.

Mætt eru:  Reynir Sveinsson, Böðvar Jónsson, Hörður Guðbrandsson, Jón Gunnarsson, Sigurður Jónsson og Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.   Einnig sat fundinn Árni Sigfússon, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. Öldrunarmál.  Rætt var um stöðu öldrunarmála á Suðurnesjum.  Stjórnin hvetur nefnd um hugsanlega sölu húseigna og rekstrarform Garðvangs að hefja störf sem fyrst.

2. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.  Fyrsta háskólaútskrift á Suðurnesjum á vegum Miðstöðvar símenntunar  mun fara fram nk. fimmtudag.  S.S.S. mun kosta veitingar sem þar verða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.10