fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Að byggja á styrkleikum svæða – Opin hádegi

Þann 4. mars nk. mun Steingerður Hreinsdóttir rekstrarstjóri Kötlu jarðvangs fara yfir áhrif jarðvangsins á samfélag og atvinnulíf á starfssvæði hans í hádegisfyrirlestri á Kaffi Duus.Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og er öllum opinn.Katla jarðvangur var fyrsti íslenski jarðvangurinn og nær yfir sveitarfélögin Rangárþing eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. Jarðvangurinn hefur lagt áherslu á að snúa við neikvæðri byggðaþróun og haft mikil áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð Heklunnar, Kadeco, Keilis, Reykjanes jarðvangs og Markaðsstofu Reykjaness.