fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

Alls bárust 67 umsóknir um IPA styrki

Alls bárust 67 verkefnistillögur með umsókn um IPA styrki til Evrópusambandsins en umsóknarfrestur rann út 30. nóvember sl.Gert er ráð fyrir að styrkt verði allt að 20 verkefni um land allt en til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra eða sem nemur 1,3 milljörðum ÍKR á árinu 2013.
Verkefni sem styrkt verða skulu taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur, um 33 milljónir ÍKR, og að hámarki ein milljón evra, eða um 165 milljónir ÍKR.
Umsóknirnar skiptast nokkuð jafnt á milli landshluta sem og forgangssviðanna tveggja og fara þær nú í faglegt mat íslenskra og erlendra sérfræðinga og niðurstöðu er að vænta í apríl nk.