fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

422. fundur SSS 2. júní 1997

 Árið 1997 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mánudaginn 2. júní kl. 12.00.

Mætt eru:  Drífa Sigfúsdóttir, Sigurður Jónsson, Hallgrímur Bogason, Pétur Brynjarsson, Jón Gunnarsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.

Dagskrá:

1. Jón A. Jóhannsson formaður Heilbrigðisnefndar Suðurnesja og Magnús H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja komu á fundinn sbr. 8. lið síðasta fundar.
Á fundinum var fulltrúum H.E.S. afhent afrit af bréfi dags. 22/5 1997 frá Grími Sæmundsen framkv.stj. Bláa lónsins h.f. til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, varðandi öryggi baðgesta við Bláa lónið.  Óskað er eftir að fulltrúar í Heilbrigðisnefnd fái bréfið afhent á fundi síðar í dag.
Nokkrar umræður urðu um málið.

2. Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja h.f.
Staða félagsins kynnt.  Óskað eftir því að stjórn A.S. leggi fram tillögur um framtíð félagsins.

3. Samkomulag (drög) um vörslu búfjár í Vatnsleysustrandarhreppi dags. 22/5 1997 sem leysir af hólmi eldra samkomulag dags. 15/5 1992.  Samþykkt.

4. Tilkynning um málþing Búseta 3. júní 1997. Lagt fram.

5. Framtíðarskipan öldrunarmála á Suðurnesjum.  Framhald frá síðasta fundi.
Málið rætt.

Fleira ekki gert og fundi slitið k. 13.50.