fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

563. fundur SSS 13. október 2006

Árið 2006, er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum föstudaginn 13. október 2006, kl. 08.00 á Fitjum.

Mætt eru:  Steinþór Jónsson, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Birgir Örn Ólafsson, Oddný Harðardóttir, Óskar Gunnarsson,  Guðjón Guðmundsson framkv.stj.  og  Berglind Kristinsdóttir  ritari.

                                                                                      
Dagskrá:

1. Bréf dags. 9/10/06 frá forsætisráðuneyti, þar sem leitað er eftir því að Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum tilnefni einn aðalmann og einn til vara í stjórn hlutafélags sem stofnað verður í eign ríkisins um framtíðarþróun og umbreytingu fyrrverandi varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli.   Stjórnin samþykkir eftirfarandi bókun:  Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fagnar væntanlegri stofnun hlutafélags um framtíðarþróun og umbreytingu á fyrrverandi varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli.

Stjórn SSS tilnefnir Árna Sigfússon bæjarstjóra Reykjanesbæjar sem aðalmann og Sigurð Val Ásbjarnarson bæjarstjóra Sandgerðis sem varamann í stjórn félagsins.

Stjórnin minnir á ályktun aðalfundar frá 9. september s.l. um brotthvarf Varnarliðsins og ályktun stjórnar frá 28. september s.l.  Í ályktun aðalfundar kom meðal annars fram: ,,Það er grundvallaratriði að sveitarfélögin séu áhrifavaldar um þá framtíð sem hér er mótuð “.  Í ályktun stjórnar segir: ,,Stjórnin gerir ráð fyrir að fulltrúar frá sveitarfélögunum sitji í stjórn félagsins“.  Því lýsum við yfir vonbrigðum okkar með að aðeins einn fulltrúi frá sveitarfélögunum sé í stjórn hlutafélagsins.

Stjórn Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum bindur miklar vonir við störf félagsins og væntir góðs samstarfs.

2. Bréf dags. 05/10/06 frá Sandgerðisbæ.  Lagt fram.


3. Sameiginleg mál.  Engin bókuð mál undir þessum lið
 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  9:29.