fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

418. fundur SSS 24. mars 1997

 Árið 1997 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, mánudaginn 24. mars kl. 15.00.

Mætt eru:  Drífa Sigfúsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Hallgrímur Bogason, Pétur Brynjarsson, Guðjón Guðmundsson og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.  Aðalmaður og varamaður Vatnsleysustrandarhrepps boðuðu forföll.

Dagskrá:

1. Fundargerð Starfskjaranefndar S.S.S. og S.F.S.B. frá 5/3 1997, samþykkt.

2. Fundargerð Bláfjallanefndar frá 13/3 1997 ásamt rekstrar og framkvæmdayfirliti og lokauppgjöri dags. 28/2 1997, samþykkt.

3. Bréf dags. 21/2 1997 frá Reykjanesbæ varðandi erindi Hestamannafélagsins Mána um undirgöng undir nýja Garðveginn.  Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að mótmæla við þingmenn kjördæmisins um niðurskurð á viðkomandi framkvæmdum.

4. Bréf (2) dags. 7/3 1997 frá Gerðahreppi.
A)  varðandi erindi Hestamannafélagsins Mána um undirgöng undir nýja Garðveginn þar sem hreppsnefnd Gerðahrepps leggur höfuðáherslu á að staðið verði við að nýji vegurinn frá Reykjanesbraut verði tengdur Garðveginum eins og hönnunin gerir ráð fyrir.  Hreppsnefnd tekur undir þau sjónarmið að við nýframkvæmdir í vegamálum sé öryggissjónar-miðum gætt í hvívetna.

B)  Varðandi fundargerð Öldrunarnefndar Suðurnesja frá 23/1 1997.  Varðandi 2. mál í fundargerðinni vill hreppsnefnd Gerðahrepps að beðið verði með að skipa nefnd þar til það liggur ljóst fyrir hvort öll sveitarfélögin ætli að vera með í þessu samstarfi.

5. Bréf dags. 18/3 1997 frá undirbúningshópi um ráðstefnu um byggðamál.  Ákveðið að dagsetning ráðstefnunnar verði 22. og 23. apríl n.k.

6. Bréf dags. 12/3 1997 frá  sjávarútvegsnefnd Alþingis ásamt þingsályktunartillögu um sölu afla á fiskmörkuðum, 202. mál.  Stjórnin tekur ekki afstöðu í málinu.

7. Bréf (afrit) dags. 11/3 1997 frá  Eyþingi varðandi málefni héraðs-sjúkrahúsa á landsbyggðinni.

8. Bréf (afrit) dags. 11/3 1997 frá SSNV varðandi jöfnun námskostnaðar framhaldsskólanemenda.

9. Framtíðarskipan öldrunarmála á Suðurnesjum, framhald frá síðasta fundi.  Ákveðið að vinna að málinu milli funda.

10. Framkvæmd samnings um D-álmu.
Stjórnin lýsir ánægju sinni með að búið er að undirrita samning um byggingu D-álmu.  Undirritaður hefur verið samningur um byggingu
D-álmu því telur stjórn S.S.S. brýnt að skipuð verði ný bygginganefnd sem allra fyrst.

11. Sameiginleg mál.
Rætt um fulltrúaráðsfund Sambands ísl. sveitarfélaga 21. – 22. mars s.l. og ályktanir lagðar fram frá fundinum.

Rætt um aðstöðumun fatlaðra með tilliti til staðsetningar stofnana innan svæðisins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17.20.