fb_pixel
Skip to content Skip to main navigation Skip to footer

454. fundur SSS 28. janúar 1999

 Árið 1999 er fundur haldinn í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum fimmtudaginn 28. janúar  kl. 15.00.

Mætt eru:  Skúli Skúlason, Sigurður Jónsson, Þóra Bragadóttir, Óskar Gunnarsson, Hallgrímur  Bogason, Guðjón Guðmundsson framkv.stj. og Jóhanna M. Einarsdóttir ritari.

Dagskrá:

 

1. Fundargerðir Bláfjallanefndar dags. 10/12 1998 ásamt gjaldskrá og samþykktum.  Samþykkt.

2. Fundargerðir Launanefndar SSS nr.207 til 213, lagðar fram og samþykktar.

3. Fundargerð Starfskjaranefndar SFSB og SSS frá 8/12 1998 lögð fram og samþykkt.

4. Bréf dags. 10/12 1998 frá framkvæmdastjórn Árs aldraðra 1999 varðandi fundi á ári aldraðra.  Formanni og framkvæmdastjóra falið að vinna áfram að málinu.

5. Bréf dags. 20/11 1998 frá Fornleifastofnun Íslands, svæðisskráning fornleifa á Suðurnesjum ásamt kostnaðaráætlun.  Erindinu vísað til næstu fjárhagsáætlunar.

6. Bréf dags 30/12 1998 frá félagsmálaráðuneytinu, þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa/varafulltrúa í svæðisráð um málefni fatlaðra.
Aðalmaður:  Svava Pétursdóttir  Sandgerði
Varamaður:  Einar Guðberg        Reykjanesbæ.

7. Bréf dags 15/12 1998 frá DS varðandi úttekt heilbrigðisráðuneytisins á hagkvæmni á sameiningu Garðvangs og SHS.  Stjórn SSS felur framkvæmdastjóra að rita ráðuneytinu bréf og vekja athygli á að samkvæmt áðurnefndu samkomulagi var gert ráð fyrir að sveitarfélögin kæmu að þessu máli og jafnframt að óska eftir upplýsingum um stöðu þess.

8. Bréf dags. 15/1 1999 frá Kjalarnesprófastdæmi, varðandi ósk um fund til kynningar á undirbúningi verkefna og hátíðahalda í tilefni kristnitökuafmælis 1999 og 2000 innan Kjalarnesprófastdæmi.  Stjórnin samþykkir að verða við ósk prófastdæmisins um fund.

9. Bréf dags 16/12 1998 frá Samb.ísl.sveitarfélaga varðandi skiptingu landsins í bókasafnsumdæmi.  Meirihluti stjórnar SSS gerir ekki athugasemd að fyrirhugaðri skiptingu landshluta í bókasafnsumdæmi.  Fulltrúi Grindavíkur er þó andvígur þeirri þróun að hverfa aftur til fyrirkomulags héraðsbókasafna.

10. Bréf dags. 9/12 1998 frá umhverfisráðuneytinu, varðandi fyrirhugaða náttúrustofu í Reykjaneskjördæmi.  Málinu frestað til næsta fundar.

11. Bréf dags. 9/12 1998, 4/1 og 7/1 1999 varðandi sjálfseignarfélagið Dýraspítali Watsons, lagt fram.

12. Bréf (afrit) dags. 2/12 1998 frá Grindavíkurbæ varðandi ályktun um skipan ráðgjafanefndar um stofun svokallaðs Landsnets, lagt fram.

13. Bréf dags. 2/12 1998 frá Reykjanesbæ ásamt bókun vegna fyrirhugaðrar stofnunar Landsnets, lagt fram.

14. Bréf dags. 16/1 1999 frá starfsmannafélagi Suðurnesjabyggða og Reykjanesbæjar.  Áður en afstaða til fundar verður tekin óskar stjórn SSS eftir greinargerð frá ykkur um hvaða þætti ætti að ræða í slíkum viðræðum þar sem í gildi er kjarasamningur til ársins 2000.

15. Fundur um breytingar á kjördæmaskipan.  Ákveðið að fundurinn verði 11. febrúar kl.20.oo.

16. Lok breytinga á húsnæði SSS og HES, uppgjörsmál og fl.
Í framhaldi af fyrri samþykktum stjórnar SSS varðandi leigu SSS og HES á húsnæði á Fitjun og skv. leigusamningnum dags. 5/12 1998, ákveður stjórn að SSS taki að láni  höfuðstól kr. 12.000.000.-ásamt kostnaði hjá Landsbanka Íslands.  Afborgun og vextir nema leiguupphæðinni kr. 150.000.- á mánuði á verðlagi í júni 1998.  Jafnframt fer stjórn SSS þess á leit við sveitastjórnirnar að þær ábyrgist lánið fyrir sitt leyti.

17. Sameiginleg mál. Á fundinn barst erindi frá leikfélagi Fjölbrautaskóla Suðurnesja, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi vegna sýningar  á söngleiknum Hamingjuránið.  Stjórnin samþykkir fjárstuðninginn að upphæð kr. 25.000.- sem tekinn verður af liðnum sérstök verkefni.

Lögð var fram áskorun Reykjanesbæjar varðandi uppbyggingu menningarmiðstöðva víðs vegar um landið.  Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum tekur undir árskorun Reykjanesbæjar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.18.20